Atli er ávaxtakakan í hópnum og hægt er að segja að erfitt er að skilja hann þegar hann fer á flug með fimm aura brandarana sína. Að eigin sögn er hann atvinnumaður í handbolta og eins góður hornamaður hefur ekki sést á Jótlandi í áraraðir. Ástæðan fyrir því að hann hefur ekki náð lengra í handboltaheiminum eru þrálát puttameiðsli og skipti hann þess vegna um vettvang og fór yfir í fótboltann mörgum til ómældrar gleði. Hann er einmitt eini jafnfætti maðurinn í liðinu.
"Til í kjeeellinn?!" |