Þetta er maðurinn með járnfótinn en hann er einmitt eini maðurinn í Heklunni sem tekur arnarskotið fullkomlega. Hann er nýgiftur, er verðandi faðir, væntanlegur forstjóri Eimskips í Danmörku og búsettur við hliðina á aðalkynlífsbúð Árósa. Styrmir er einmitt þekktur undir nafninu "Reddarinn" í hópnum og lumar hann á ýmsum vörum sem þekkjast ekki á götum úti.
"Sorrí maður, snusið er bara fast í Silkeborg!" |