15.3.2010 18:10
Andri sigurvegari á fyrsta pókerkvöldi ársins

Tæplega tuttugu manns mættu á fyrsta pókerkvöld ársins hjá Heklunni sem haldið var á Herredsvej s.l. föstudagskvöld. Spilað var á tveimur borðum og rebuy var leyft fyrsta klukkutímann. Það kom sér vel fyrir þá sem voru ekki alveg að finna fjölina fyrsta klukkutímann, eða voru óheppnir, og voru þeir nokkrir. 

Annars gekk spilamennskan rólega mestallt kvöldið, menn voru ekki mikið að taka sénsa og því teygðist vel úr kvöldinu. Klukkan tvö voru úrslitin orðin ljós en það var Andri sem hirti pottinn eftir heads-up gegn Elvari. Gaui (Heklunýliði) tók þriðja sætið eftir að hafa verið chipleader í dágóðan tíma um miðbik móts. Kiddi tók svo fjórða sætið. Potturinn skiptist þannig að fyrsta sætið fékk 900 kr, annað sætið 500 kr, þriðja sætið 350 kr og fjórða sætið 250 kr.

Fínasta pókerkvöld og þægilegur fjöldi þátttakenda þrátt fyrir að við hefðum auðvitað viljað sjá fleiri.

Næsta Heklukvöld verður um miðbik aprílmánaðar en þá ætlum við að hittast uppí Skejby í fællessalnum hjá Ömma og gera okkur glaðan dag og kvöld. Nánar auglýst síðar.

Heklukveðja,
Einar



Til baka