Fyrsta pókermót ársins verður haldið á föstudaginn og fer það fram í fællessalnum á Herredsvej 60b. Verður fyrsta gjöf gefin stundvíslega kl 20:00 en húsið opnar kl 19:30. Sömu reglur verða í mótinu og verið hafa í undanförnum mótum. Smella á lesa meira til að sjá meira.
Velkominn í "meira". Fyrir þá sem ekki vita hvernig mótunum hefur verið háttað hjá okkur þá er þátttökugjaldið 100 krónur, buy-in leyfilegt fyrsta klukkutímann og svo verður spilað cash-game til hliðar þegar nógu margir eru dottnir út og áhugi er fyrir hendi. Blindsarnir verða hækkaðir svona temmilega hratt, við látum pókermeistarann okkar um að ákveða það á endanum en ætli það verði ekki einhversstaðar í kringum tuttugu mínútur.
Vinningsféð verður tilkynnt eftir að re-buy er lokið.
Allt verður fljótandi í bjór á svæðinu og kostar hann sem fyrr 10 krónur.
Skráning fer fram á spjallinu og á facebook grúppunni okkar. Endilega að gera það sem fyrst. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að spjallinu einfaldlega stofna hann, það tekur um tvær mínútur max. Ef allt þrýtur þá bara senda mér meil, paradisareyjan@gmail.com
Kv. Einsi