15.12.2009 09:51
Þorrablót Íslendinga í Danmörku
Nú er einstakt tækifæri fyrir Íslendinga í Danmörku á að upplifa al íslenska matarmenningu og sveitaballa stemningu. Laugardaginn
6. febrúar 2010 verður haldið þorrablót Íslendinga í Danmörku.
Blótgleðin verður haldin í Østhavnsvej 37, 8000 Århus C. Húsið opnar
kl: 18:00 og er áætlað að borðhald hefjist um kl: 19:30.
Á
hlaðborðinu má finna eðal þorramat sem bæði er súr og ósúr, rófustöppu,
harðfisk og hákarl, hangikjét og uppstúf, rúgbrauð og flatbrauð með
sméri, glóðasteikt íslenskt lambalæri með tilheyrandi.
Það er
óhætt að segja að strákarnir okkar í Sálinni hans Jóns míns munu spila
á ballinu um kvöldið. Verið er að vinna í því að fá veislustjóra til að
koma og stýra veislunni.
Hótel Cabinn í Árósum býður Íslendingum
upp á tilboð á gistingu þessa helgi. Hægt er að velja um eftirfarandi
herbergi Economy (enkeltværelse) DKK 400.- Commodore (dobbeltværelse)
DKK 575.- Captains Class (stort dobbeltværelse) DKK 675.-
Þeir Íslendingar sem vilja nýta sér þetta tilboð hjá Hótel Cabinn þurfa að gefa upp bókunarnúmerið 599340.
Miðaverð
á þorrablótið er 450.- fyrir mat og ball og 300.- fyrir ball. Eftir 15.
janúar mun miðaverð hækka og þá kostar 500.- fyrir mat og ball og 360
fyrir ball.
Miðasala
Hægt er að kaupa miða á eftirfarandi stöðum:
Århus: Miðasalan hefst fimmtudaginn 17.12.2009
Skrifstofa Eimskips, Østhavnsvej 37, 8000 Århus C.
Aros Hair, Maren Smeds Gyde 4 8000 Århus C, tlf 86 12 18 02
Á næstu dögum verður hægt að kaupa miða inni á billetlugen.dk
Jafnframt
verður hægt að kaupa miða á viðburðum Íslendingafélagsins í Árósum,
Skötuveisla laugardaginn 19.des frá kl: 13:00 – 17:00, Jólaball 27.
desember frá kl:14:00.
Við hvetjum alla til að tryggja sér miða í tæka tíð og upplifa al íslenska sveitaballa stemning.
Frekari upplýsingar er hægt að fá í síma 26 39 04 57 eða með því að senda tölvupóst til thorrablot@isfan.dk
(innsend auglýsing)
Til baka