Hér er uppfærður skuldalisti drengir, endilega borgið sem fyrst svo sé hægt að gera upp vetrarseasonið og við getum byrjað vorið á núlli
Hér er reikningsnúmer Heklunnar:
Konto nr. 3719426085
Reg nr. 1551
Einnig er hægt að láta mig hafa aur við tækifæri, bara ekki gleyma því
Ykkar kæri gjaldkeri.
Óskar.
————————————————————————–
Andri Freyr Arnarsson 60
Arnar 20
Atli Rafnsson 110
Bardur Olgeirsson 140
Bergur Jónasson 20
Bergur Sigurjonsson 90
Bjarni Siguróli Jakobsson 50
Bjorn Helgi Karlsson 130
Davíð Ingi Daníelsson 70
Einar H. Sigurðsson 360
Elli Joð 335
Gestur Akason 30
Guðmundur Óskar 300
Gunnar Freyr Gunnarsson 40
Halldór Ásmundsson 120
Hans Orri Kristjánsson 10
Heiðar Kristinsson 40
Hjalti Brynjarsson 90
Hjalti Magnússon 100
Hlynur Halldorsson 20
Hrafnkell Markusson 20
Ingiber Freyr Ólafsson 50
Johann M Kjartansson 70
Jón Ágúst Hjaltason 10
Jónas Jónsson 90
Kári Lefever 190
Kristinn Berg 50
Kristinn Þór Valtýsson 50
Kristján Rafn Gunnarsson 40
Leví 120
Magnús Már 40
Magnús Þórður Rúnarsson 50
Ólafur Örn Markússon 240
óli Barðdal 230
Óskar Valdórsson 160
Sigfús Örn Guðmundsson 30
Sindri Þorkelsson 170
Steinn Gunnarsson 20
Styrmir Jóhannsson Balcázar 540
Vilhjálmur Pétursson 130
21.01.2012
Staður: Dania Kollegiet, Fællessal, Finlandsgade 16C -kjallarinn.
Stund: Gleðistund sem hefst kl 20, en húsið opnar hálftíma fyrr.
Verð: Ekkert, bara klink í vasanum fyrir bjór.
Staðalbúnaður: Limur í buxunum
Allt hitt: Hér að neðan.
Kæru karlmenn og aðrir kátir piltar. Nýtt ár og vor í lofti og af því tilefni þá ætla íþróttafélög íslenskra karlmanna í Aarhus að slá saman í hressandi viðburð og fagna nýju ári. Það verða spil á borðum og skemmtiefni á stórskjá. Það verður keppt í einhverjum leikjum í keppnunum, sem fara bróðurlega fram. Þá bjóðum við þeim sem standa sig betur en aðrir góð verðlaun, en hinum óspilandi bjóðum við gleði í hjarta eða spark í punginn (sjálfdæmi þar um). Einnig mun fara fram fjölsmakk á ómerkilegum og billegum bjór, þar sem ágóðinn rennur til æfingagjaldanna.
Knattspyrna með Heklunni fer um þessar mundir fram innandyra og þar er hóflegt æfingaálag, eða eitt skipti í viku og er þá spilaður fótbolti. Nú stendur handboltatímibil Mjölnis einna hæst og æfingar eru á fullum krafti (einu sinni í viku, sem er hóflegt álag).Sumir eru jafnvel svo djarfir eða þolgóðir og æfa með báðum liðum. Aðrir ekki.
Bæði félögin eru að vonast til þess að sjá einhver ný andlit slæðast með þessum gömlu góðu, því það eru alltaf einhverjir spriklarar sem flytja reglulega heim, innblásnir andans menn með timburmenn af öllum þessum túborg.
Þeir sem munu mæta á þetta Hristasamannýliðakvöld verða af öllum stærðum og gerðum, bæði núvirkir, meðvirkir og óvirkir meðlimir íþróttaliðanna og þeir eru líka hvattir til að draga vin með sér, svo þeir sjái að við erum jafn fallegir og af er látið og að það er tekið vel á móti öllum sem langar að blanda geði og leika sér með uppblásinn knött í góðum hópi.
Facebook linkur fyrir áhugamenn um facebook:
https://www.facebook.com/events/191312484301480/
Lifið heilir og áfram Ísland.
Þá er enn einu tímabilinu lokið hjá Heklunni en leikmenn ætla ekkert að slá slöku við í tuðrusparkinu heldur byrja strax á inniæfingunum sem eru jú alltaf mega skemmtilegar – ekkert betra en að slútta vikunni á smá innibolta og smá ölspjalli.
Fyrsta æfingin verður á föstudaginn kemur (þann 21. okt) kl 20:00 í Vejlby Risskov Hallen SAL 4 – sem sagt sami staður og sami tími og alltaf. Við munum skiptast á að vera í HAL1 og HAL4 í vetur og verður látið vita fyrir hverja æfingu hvorum megin við erum því það er ekki sami inngangur fyrir báða salina.
Um er að ræða 14 æfingar fram í mars og eins og alltaf áður þá mun hver æfing kosta 20 krónur á mann eða 200 krónur greiði menn fyrir allar æfingarnar í einu. Þó verða ekki æfingar í kringum jól og áramót og ekki á J-daginn 4. nóvember.
Þar sem inniæfingarnar kosta slatta pening þá er mikilvægt að menn skrái sig á æfingaeventinn á facebook hverju sinni svo hægt sé að átta sig á því í tíma hvort menn ætli að mæta eða ekki og þá að afbóka salinn í tíma. Ev vonandi verður bara góð stemning fyrir inniæfingunum svo ekki komi til þess að þurfa að hætta við. Engu að síður hvetjum við menn að fylgjast vel með síðunni/Facebook til að sjá stöðuna hverju sinni.
Kv. Einsi
Mánudaginn 12. september s.l. hittu SF Heklu strákarnir hittu svo sannarlega mennina sem voru að reyna við ömmur þeirra í seinni heimstyrjöldinni, aaaa þeir voru kannski ekki svo gamlir en meðal aldurinn var vel yfir fertugt ef ekki fimmtugt. Þrátt fyrir það voru þetta menn sem flestir vissu VEL hvað fótbolti gengur út á, sem betur fer fyrir hjólbeinóttu, þúfugengna, þreytta eftir klakamót og bjór þambandi Íslendinga hentaði völlurinn afar illa fyrir fótbolta iðkunn, en vegna vætu dagana áður plús æfingar og leikir annara liða þá var völlurinn bæði blautur og leðjóttur.
Pistlahöfundur mæti seint í leikinn en það var verið að flauta hann á þegar ég mætti, enda tímasetnings leiksins fáránleg, klukkan 17:00 á mánudegi, þessi tímasetning hentar fjölskyldumönnum afar illa enda var Gunni (fjölskyldumaður) einnig ný mættur.
Jæja þar sem ég skrifaði þessar fyrstu línur fyrir ca 3 vikum og þá voru í kringum 3 vikur síðan leikurinn var þá man ég ekki neitt hverjir voru í liðinu en hér kemur það sem ég man.
Ekki þurfti að bíða lengi eftir fyrsta marki leiksins, það var Heklan sem náði að setja það á fyrstu mínútu leiksins og það var Mummi, Stymmi eða Maggi Þórður sem setti það 1-0 fyrir Heklunna. Ég (Sindri) var ekki kominn í markið en Óli, bróðir Hrafnkels báðir synir Markúsar, fékk að fylla útí markið fyrstu 5 mín, elliheimilis mennirnir jöfnuðu leikinn fáeinum mínútum síðar en Óli fékk klobba mark á sig, ég sá að vísu ekki tildragandan en þetta var algjört klúður hjá honum, enda engar smá lengjur á drengnum og auðvelt að koma boltanum á milli þeirra 1-1. Fagrablakk leist ekkert á blikuna að hafa hann markinu og sendi reynsluboltan (mig) inná milli stanganna til miklar gleði fyrir Óla. Ekki leið á löngu þangað til að Mummi, Stymmi eða Maggi Þórður settu enn eitt markið fyrir Heklunna 2-1. Gömlu jaxlarnir náðu síðan að jafna leikinn rétt fyrir hálfleik, það getur líka verið að það hafi verið í byrjun seinni hálfleiks 2-2, en það er smáatriði miðað við þrumu fleyginn sem Mummi, Stymmi eða Maggi Þórður settu af stað í þriðja markinu okkar og netmöskvarnir þöndust út. Þriðja mark Heklunnar staðreynd 3-2.
Fjórða mark Heklunar verður síðan að teljast eitt það glæsilegasta sem Heklan hefur skorað, eftir miðjuþóf á miðjunni( what var það á miðjunni, ööööö já þess vegna heitir það miðjuþóf) barst boltinn til Hjalta á vinstri kantinum, hann hljóp upp að endalínu og lék framhjá einum leikmanni þar en var við að missa boltann of langt frá sér og í fætur andstæðingsins þegar Bergur öskraði á eftir boltanum 15 metra fyrir utan teginn, Hjalti náði að pota tánni í boltann og hann barst til Bergs, Bergur þrumaði viðstöðulaust í tuðruna ca 30 metrum frá markinu og barst hann þar framhjá hverjum leikmaninum á fætur öðrum, það sást í augum markvarðarins að hann hugsaði að hann þyrfri að nota alla 200 cm sína til að ná í boltann, en því miður fyrir hann þá var boltinn kominn í hægra bláhornið þegar þeirri hugsun lauk. Fjórða mark Heklunar staðreynd og ekki var það af verri endanum.
Gömlu reynslu jaxlarnir lögðu þá alla áherslu á sóknarleik seinustu 10 mín leiksins og skilaði það þeim marki í einni hornspyrnunni þegar þeirra elsti leikmaður sem einnig var fyrirliði þeirra skallaði knettinum í mark okkar 4-3. Seinustu 2-3 mínútur leiksins voru gömlu jaxlarnir í sókn og munaði það ekki miklu að þeir höfðu náð að jafna metinn en markmaður Heklunar náði að verja á línunni, stuttu eftir það flautaði dómari leiksins til leiksloka. Mörk Heklunnar skoruðu Mummi, Stymmi, Maggi Þórður og Bergur.
Menn leiksins: Sindri og Bergur.
Pistill: Sindri
Árshátíð félagsins verður haldin laugardaginn 12. nóvember n.k. Staðsetning verður sú sama og undanfarin tvö ár, eða í húsi Arion-kórsins útí Risskov. Verið er að vinna í ýmsum tæknilegum atriðum varðandi árshátíðina svo nánari upplýsingar koma síðar þegar allt er komið á hreint.
Nú hafa í allt fimm leikmenn í allt greitt æfingagjöld og höldum við áfram að hvetja menn að greiða skuldir sínar sem allra allra fyrst, annars verður engin árshátíð.
Update kemur síðar.
Kv. Einsi
Laugardaginn 29. október n.k. ætlum við að hittast í fællessalnum hjá Hjalta Brynjars og fagna lokum tímabilsins. Pöb-Quiz fer í gang um áttaleytið og eftir það er bara almenn drykkja og spjall og aldrei að vita nema verði farið í eitthvað gott rugl. Síðan tekur við stórkostleg bæjarferð kl 23:55.
Fyrir þá sem ekki vita þá býr Hjalti á kollegíinu við Arkitektarskólann þarna við Nørreport. Húsið opnar kl 19:30 og sem fyrr verður seldur bjór á 10 krónur. Vonandi sjáum við sem flesta á svæðinu og handboltastrákarnir eru að sjálfsögðu velkomnir sem og allir aðrir. Takið frá þetta yndislega laugardagskvöld, góð upphitun fyrir árshátíðina! Gary mætir með alla sína visku!
Sjáumst hressir!
Það var einbeittur hópur Heklu drengja sem var mættur á idrætsanlæg-ið hjá Christiansbjerg mönnum laugardaginn 8. október s.l, tilbúinn í baráttu upp á líf og dauða – Framundan var mikilvægasti leikur SF Heklu þetta sumarið, barátta upp á æru leikmanna, upp á stoltið og ekki síst möguleikann á að tryggja stöðu sína í 4.seríu.
Persónulega finnst mér að ég eigi að fá Nóbelinn fyrir þessar dramatisku lýsingar hér að ofan, en engu að síður þá var þetta mikilvægur leikur fyrir okkur þar sem Christiansbjerg menn voru fyrir þennan leik neðstir með 6 stig og við í þriðja neðsta sæti með 8 stig, semsagt gátum með sigri skilið þá eftir vonlausa fyrir neðan okkur.
Þrátt fyrir að undirritaður hafi nýtt alla þá fallbaráttureynslu sem fylgir því að vera Grindvíkingur, til þess að blása lífi í leikmenn Heklu þá byrjuðum við ekki nógu sterkt, náðum illa að halda boltanum og eins og oft áður í sumar þá vorum við nokkurs konar underdogs og vorum mikið að elta. Okkar besti maður í þessum fyrri hálfleik var hinn stórvaxni og rauðbirnki markvörður Árni Björn. Að eigin sögn átti hann afleita upphitun fyrir leikinn en sýndi svo um munar að það skiptir litlu þegar komið er í leikinn. Að öðrum punktum fyrri hálfleiks má nefna að formaður félagsins, Eyjamaðurinn skeleggi, sem má muna sinn fífil fegurri í líkamlegum styrk skakklappaðist út af eftir nokkurra mínútna leik eftir frekar kvenlega tæklingu á miðjum vellinum. En eftir að hafa fengið vatn á óó-ið kom hann aftur inn á. Það var svo Trommarinn stæðilegi sem átti óuppgerðar sakir við einhvern leikmann Christinsbjerg eftir að þeim lenti víst saman á balli í Njálsbúð um árið, en Heiðar tók sig til og rennitæklaði þennan fír og sá lá eftir í vellinum líkt og að loftárás hafi átt sér stað og dómarinn ákvað að vísa Heiðari út af með gulu spjaldi. Þetta var sárt fyrir trommarann þar sem hann sá þarna fram á að þvottavélar heimilisins yrðu hans griðastaður það sem eftir lifði dags, það er jú þannig að sá sem fyrstur fær fult fær sjálfkrafa þann heiður að þrífa búningana! En fyrri hálfleikurinn einkenndist af mikilli stöðubaráttu án þess að nein stórkostleg færi hafi borið á góma.
Menn gengu því nokkuð sáttir til hálfleiksins og allir voru sammala um að við þyrftum ekki að bæta mikið við til þess að ná að klára leikinn. Eitthvað voru menn þá tæpir á því. Við náum engan vegin upp spili eftir hálfleik og það var bersýnilega farið að fara í skapið á mönnum. Undirritaður man eftir því að hafa hugsað um miðjan hálfleikinn hvað það væri nú eiginlega gott að Elías Jóhann skapofsamaður væri ekki í liðinu þennan daginn, því líklega værum við orðnir einum færri ef skapi hans hefði notið við en ég var vakinn af værum blundi þegar ég heyri á bak við mig að einn Christinsbjergmanna var dúndraður niður á miðjum vellinum, ég hafði gleymt því að hinn skapofsamaður Heklunnar, Björn Tatto hafði fengið sig full saddan af þessum leik og ákvað að láta reka sig út af. Honum til vorkunnar þá vill hann meina að hann sé saklaus. Við höfðum átt erfitt uppdráttar fram að þessu og nokkuð ljóst að róðurinn yrði þungur einum færri en mjög stuttu seinna var einn andstæðinganna sömuleiðis sendur út af í 10 mínútur fyrir innbyrðis riflildi.
Á þessum tímapunkti var farið að sjóða vel á mönnum, sem er nú alla jafna mjög skemmtilegt en var hugsanlega komið aðeins út í öfgar en í næstu sókn þá reyndi enn á ný á líkamlegan styrk Eyjamannsins, formanns félagsins en þá hljóp á hann dvergur úr liði Christinasbjerg og formaðurnn féll í ómegin og í einhverju rugli sem varð þarna í framhaldinu kom sending innfyrir þar sem rangstæður leikmaður þeirra náði að komast inn fyrir og skora. Það er óhætt að segja að þetta hafi farið illa í okkur alla og er best að endurtaka ekki mikið þau orð sem féllu á milli manna á þessu augnabliki. EN það er eins og oft áður að það þurfti mark til að kveikja á okkur, við tókum fljótlega öll völd á vellinum og náðum að setja mikla pressu á þá sem endaði með því að í glæsilegri sókn þar sem Björn Tatto fékk stundusendingu innfyrir og mjög óeigingjarnt sendi glæsilega sendingu á Davíð sem lét ekki segja sér það tvisvar og kláraði færið á glæsilegan hátt. Nokkrum mínútum síðar fékk Maggi Þórður góðan bolta á fjær en náði því miður ekki að setja hann.
Niðurstaðan varð því 1-1- jafntefli sem við megum bara vera sáttir við, baráttan seinni hluta seinni hálfleiks var til fyrirmyndar og við uppskárum eftir því.
Undirritaður hefur fulla trú á því að það leynist í mörgum SF Heklu mönnum Grindavíkurhjarta sem hafi blásið baráttuandann í menn þarna á lokasprettinum.
Líf og fjör,
Kveðja, Dr. Gunni a.k.a. Júgginn
Sjötti leikur Heklunnar þetta árið var háður þann 20. september s.l. í mikilli rigningu og á velli sem verður best líkt við vellina sem komið hefur verið upp við Ísafjarðardjúp kringum Verslunarmannhelgina….jú rétt til getið, þetta var eins og Mýrarbolti! Til að bæta gráu ofan á svart þá var mikil mannekla innan Heklunnar fyrir þennan leik sem setti kannski smá strik í (síma) reikninginn (hjá þjálfaranum). 10 menn voru mættir þegar 2 mínútur voru í leik og svo bættust við Stymmi sem var okkar 11. maður og svo fengum við fína reddingu frá Leví úr handboltanum ásamt Mola sem lét sjá sig eftir vægast sagt mikla fjarveru síðustu mánuði.
En að leiknum….NB lá svolítið á okkur til að byrja með og menn áttu í miklum erfiðleikum með að fóta sig inni á vellinum sem gerði leikinn ekki beint skemmtilegan áhorfs. Eftir um 5 mínútna leik þá sparkar óvart miðjumaður heimamanna boltanum inn fyrir sína eigin vörn og Elli Joð var kominn í ágætis möguleika en dómari leiksins ákvað að flauta rangstöðu….þjálfarinn var nú ekki parsáttur með þessa ákvörðun og vildi útskýra fyrir dómaranum að það hefði verið samherji sem hefði spyrnt boltanum inn fyrir og því ekki rangstaða. Dómarinn var vægast sagt ekki sáttur við undirritaðan, reif hann til hliðar og gjörsamlega froðufelldi yfir hann fúkyrðum og einhverju bulli sem enginn skyldi, (ég hélt að maðurinn væri að fara að fá hjartaáfall). Eftir þetta héldu allir kjafti og enginn þorði að opna á sér trantinn.
En áfram hélt leikurinn og eiginlega þvert gegn gangi leiksins þá komst Heklan yfir. Einhver misskilningur var milli markmanns og varnar hjá NB langt uppi við miðlínu og Elías Jóhann komst inn í boltann og spyrnti honum skemmtilega í markið, 1-0 fyrir Heklu. Hinir gaurarnir sóttu þokkalega á okkur með lítinn ofvirkan djöful í fremstu viglínu sem var að gera okkur lífið leitt ásamt einhverjum ljósastaurnum sem reyndi að nikka á hann hvað eftir annað. NB náði að jafna þegar um 25 mín. voru liðnar af leiknum þar sem sending utan af kanti komst inn í boxið og þeir klára ágætlega…súrt! Næstum endurtekning af fyrsta marki þeirra leit dagsins ljós skömmu síðar og skyndilega voru heimamenn komnir yfir. En Heklan er nú ekki þekkt fyrir það að gefast upp og eftir skemmtilegt miðju-/varnar-/kantspil þá berst boltinn á Hjalta á miðjunni sem sendir líka þessa fínu sendingu á Fagrablakkinn sem fór fram hjá markmanninum og setti hann í netið, 2-2. En NB djöflarnir komust aftur yfir og enginn man hvernig vegna þess að það var ljótt mark! Svo gerðist spes atriði, Stymmi lenti í samstuði við varnarmann NB og hefði klárlega átt að fá aukaspyrnu en ekkert var dæmt. Stymmi var nokkuð illa haldinn og átti erfitt með að ná andanum og staulaðist á fætur til að auðvelda sér loftinntöku. Dómarasteikinn kemur askvaðandi og spyr Stymma hvort að hann sé í lagi en Stymmi á erfitt með að svara….dómarinn gjörsamlega snappar aftur og segir basically Stymma að drullast til að svara sér eða hann hendi honum útaf, alveg tilbúinn með gula spjaldið…..meiri steikin!
Eftir þennan episode með dómarann þá róaðist leikurinn aðeins en NB sótti þó meira. En enn og aftur jafnar Heklan, þetta skiptið eftir að Stymmi var fljótur að hugsa (þrátt fyrir mikið súrefnisleysi nokkrum mínútum áður) og sendi hann inn fyrir á Blakkinn sem sólaði tvö kvikindi og setti hann í netið, 3-3. Til gamans má nefna að hrossið var nýbúinn að brenna af dauðafæri, einn á móti markmanni eftir fína sendingu frá Hjaltanum….en alla vega 3-3 í HT.
Seinni hálfleikurinn einkenndist af almennum leiðindum og meiri viðbjóð…en Heklan fékk þó kjörið tækifæri til þess að komast yfir eftir um 5 mín. leik í seinni þar sem Sindri sendi langan bolta fram og varnarmenn NB rúnkuðu hverjum öðrum eitthvað í ríminu og Davíð var nánast kominn einn inn fyrir. En á einhvern ógeðslega heimskulegan hátt reyndi hann að vippa í stað þess að leggja boltann bara fram hjá markmanninum og varnarmanninum sem stóðu fyrir framan hann og markamaður átti nú ekki í miklum erfiðleikum með að grípa ábyggilega lélegustu vippu síðan Totti tók vítaspyrnuna á móti Lecce hérna fyrir nokkrum árum….þvílík skita! Það má segja að þetta hafi verið vendipunktur leiksins þar sem við fengum á okkur 3 mörk í þessum seinni hálfleik án þess að gera nokkuð á móti og lokatölurnar 6-3….Má svo sem bæta því að Hjalti Magg eða Chessi setti nú eitt stk. fyrir heimamenn, flottur skalli
Liðið (startið):
Sindri
Chessi-Svavar-Kristján Rafn-Óskar
Stymmi-Davíð-Hjalti-Óli Mark
Magnús Þ.-Elli Joð
Varamenn (sem báðir komu inn):
Moli
Leví
Maður leiksins:
Enginn valinn
Spjöld:
Chessi (Hjalti nýji)
Pistill:
Davíð, Fagriblakkur, Blakkur, Hrossið
Nú styttist óðum í árshátíð félagsins sem verður að öllum líkindum laugardaginn 12. nóvember (nánari upplýsingar síðar). Til að hægt verði að halda árshátíðina þá er gríðarlega mikilvægt að allir greiði skuldir sínar sem fyrst. Sérstaklega eru æfingagjöldin mikilvæg þar sem þau eru jú stór hluti af tekjum félagsins. Fyrir þetta seinna tímabil er gjaldið sama og í fyrra eða 400 krónur en þeir sem greiddu fyrir bæði tímabilin í vor þurfa auðvitað ekki að borga aftur, ekki nema þið viljið einfaldlega sýna vilja í verki og styrkja félagið. Eins og áður þá fylgir greiðslu æfingagjaldsins frímiði á árshátíðina fyrir sig og maka.
Hægt er að borga okkur í stjórninni, helst gjaldkeranum, en þægilegast er auðvitað að leggja pening beint inná reikning Heklunnar.
Reikningsupplýsingar félagsins eru eftirfarandi:
Reg nr: 3627
Kontonr: 3629 655 573
Koma svo drengir! Allir að borga bjórskuldir og æfingagjöldin sín !
Kv. Einsi

Næstsíðasti leikur tímabilsins fer fram á morgun laugardaginn 8. október kl 13:00. Leikið verður gegn Christiansbjerg IF á þeirra heimavelli sem er staðsettur að Bodøvej 209, 8200 Aarhus N.
Christiansbjerg eru neðstir í riðlinum með 6 stig en Heklan er einungis tveimur sætum ofar með 8 stig þannig að þetta er sannkallaður fallbaráttuslagur og skiptir gríðarlegu máli að vinna þennan leik uppá að liðið haldi sér í seríu 4.
Þjálfararnir eru að vinna í hópnum og mun hann verða settur hér inná síðuna í kvöld.
Sjáumst ferskir á morgun !
Kv. Einsi
Sælir félagar.
Við ætlum að fjölmenna á AGF – OB sem verður sunnudaginn 16.okt klukkan 16:00.
Síðasti leikurinn okkar er sama dag klukkan 11 upp í Hasle þannig að það er gráupplagt að halda aðeins upp á að við höldum okkur í seríunni með því að fá sér nokkra gráa og sjá vonandi skemmtilegan leik.
Samkvæmt heimasíðunni hjá AGF (http://www.agffodbold.dk/news.asp?id=9432) þá virðist vera massívur áhugi á leiknum þannig að það verður örugglega stuð og réttara að kaupa sér miða sem fyrst – Fyrir þá sem ekki vita að þá spilaði AGF við FCK um síðustu helgi og þá sauð allt uppúr á milli stuðningsmanna liðanna..
Við ætlum að hittast á AGF barnum fyrir leikinn, svona um hálf 3 og fá okkur einn eða tvo til og rölta svo saman upp á völl. Þessi bar heitir Søren Bruun http://www.soren-bruun.dk/ (addressahttp://maps.google.com/maps?q=Skt.+Pauls+Kirkeplads+2%2C+8000+Aarhus+C&hl=en&sll=56.171376%2C10.190337&sspn=0.01142%2C0.037637&vpsrc=0&hnear=Skt.+Pauls+Kirkeplads+2%2C+8000+Aahrus%2C+Aarhus+C%2C+Denmark&t=m&z=15)
Menn sjá sjálfir um að kaupa sér miða en ef þið farið hér innhttp://elitebillet.dk/printselv_agf/src/arrangement.asp?start=true þá getið þið keypt miða á netinu – það er líka hægt að kaupa miða í nokkrum sjoppum hérna í bænum sjá hér http://www.agffodbold.dk/Content.asp?id=181 – En við erum að stefna að því að vera í KRIFA Tribunen – C5 – þið getið þá keypt ykkur miða í það svæði.
Þar sem menn eru ekki alveg með fattarann í gangi eða hafa ekki alveg lesið “leiðbeiningarnar” varðandi nýju heimasíðuna þá eru hérna nokkrir punktar:
- Menn hafa verið að spyrja um hvort ekki vanti spjall –> “Neðra” fréttakerfið er byggt upp til að nota sem spjall líka. Einfaldlega smella á “Nýr póstur” og þú getur skrifað hvað sem er inná forsíðuna og spjallað
- Einhverjir hafa ekki getað fundið út að það er actually hægt að smella á “Toppfréttirnar” þarna með myndunum. –> Einfaldlega smella á gluggann með myndinni og þá fariði inní fréttina
- Eftir að búið er að opna videó hægri megin á forsíðunni þá er nóg að smella bara einhversstaðar fyrir utan videórammann til að fara til baka. Og muna: öll gömlu videóin eru síðan uppí menubarnum undir “Myndbönd”
Við höfum fengið eitt komment varðandi uppsetningu síðunnar og tengist það toppfréttadæminu. Endilega látið okkur fá allar ykkar pælingar varðandi síðuna – allt verður tekið til skoðunar.
Kv. Einsi
Hvað segja Davíð og Sindri – koma þessir pistlar einhverntímann á þessum áratug ??
Kæru Heklumenn.
Ég hef ákveðið að bjóða mig ekki aftur fram í stjórn á aðalfundi félagsins núna seinna í haust enda hef ég sinnt starfi formanns í þrjú ár og finnst tími til að nýjir menn taki við. Davíð hefur setið í þrjú ár í stjórn og Elvar í fjögur og báðir hafa þeir lagt mikla vinnu í starf félagsins á þessum tíma og finnst þetta komið ágætt. Gestur og Gunni sem komu inn í stjórn á síðasta ári eru því miður líklega báðir á förum frá Aarhus, Gestur er að flytja til Íslands og Gunni er jafnvel á leið til Íslands einnig eða Köben eða Singapore eða hvað veit ég.
Það er því ljóst að stjórnarskipti munu verða í Heklunni í haust. Það er mikið af góðum og öflugum mannskap í félaginu sem stjórnin vonar innilega að sjái sér fært að taka við stjórn félagsins. Gamlir stjórnarmenn munu sjálfsögðu verða nýjum til aðstoðar í byrjun eins og gengur og gerist. Þeir sem hafa áhuga á að taka að sér að sitja í stjórn endilega hafið samband við mig í síma 53610206 eða á meilinu, paradisareyjan@gmail.com
Heklukveðja,
Einar
Heklan mætti öðru af toppliði riðilsins við hádegisbil í gær, BK07. Þetta er eitt af mörgum töluliðum í dönskum fótbolta en eins og við vitum þá eru danir mjög töluglaðir. Þeir voru í tæknilegri baráttu við Lystrup um að komast upp í seríu 3 en vonir BK kjúklinganna fólust í því að vinna alla sína þrjá leiki sem eftir voru og að Lystrup myndi tapa sínum tveimur. En Heklumenn slökktu allar vonir kjúklinganna með því að spila uafgjort eins og sagt er hér í landi, leikurinn endaði 2-2 í baráttuleik. Undirbúningur liðsins fyrir leik einkennndist mjög af gríðarlegum vandræðum feðranna í hópnum en konurnar voru flestar í bústaðaferð þannig að pabbarnir vissu ekkert hvernig þeir ættu að fara að því að höndla þetta. Sumir mættu einungis rétt fyrir leik með kerruna og aðrir mættu það seint að þeir þurftu að byrja á bekknum. En allt hafðist þetta þó á endanum.
Heklan byrjaði töluvert betur í leiknum og settu kjúklingasteikurnar í nokkur vandræði. Hjalti kom Heklunni yfir eftir ca 15 mínútna leik með stórglæsilegu marki beint úr aukaspyrnu. Spyrnan var af ca 25 metra færi og Hjalti gerði sér lítið fyrir og skrúfaði boltann yfir vegginn og klíndi honum í vinstra hornið, gjörsamlega óverjandi fyrir markmanninn og eitt af mörkum ársins staðreynd. Eftir markið tóku BK menn yfir leikinn og sóttu án afláts það sem eftir lifði fyrri hálfleiksins. Það kom svo að því að þeir jöfnuðu en misskilningur milli Gunna og Sindra ásamt því að það misfórst í fótboltauppvexti Gunna hvernig á að hreinsa, leiddi til þess að sóknarmaður þeirra komst einn í gegn og renndi honum auðveldlega í netið. 1-1 eftir ca 30 mínútur. Elli Joð lét reka sig heimskulega útaf með því að hrinda einum leikmanni BK en Elli meikaði bara ekki djúpsteikingarsmellið af gæjanum og kastaði honum í grasið. BK hélt áfram að sækja duglega en Heklan þraukaði út hálfleikinn einum færri.
Einungis sex leikmenn tóku hringinn fyrir seinni hálfleikinn þar sem restin af liðinu var í barnapössun, en það virtist ekki koma að sök því Heklan kom mun ákveðnari út í seinni hálfleikinn. Spilið fór aftur í gang og eftir eina glæsilega sókn þar sem Einsi vann boltann , gaf hann út á kant á Andra, brunaði svo upp fékk sendingu aftur frá Andra inní teig en tók svona líka skemmtilegu gabbhreyfinguna og steig yfir boltann þannig að boltinn endaði á Davíð sem var kominn í dauðafæri og hafði of marga möguleika renndi honum til hliðar á Magga Þórð sem svona líka klíndi honum uppí sammann fjær. Löng setning en jafn skemmtileg og sóknin. Ekki margir höfðu trú á að Maggi myndi setja hann þarna, sérstaklega Einar, enda maðurinn enn hálfölvaður eftir oktoberfest kvöldið áður. En Maggi sýndi að ekki ber að vanmeta hann og setti þetta líka stórglæsilega markið.
Eftir þetta var leikurinn í járnum en Heklan þó með yfirhöndina. Eftir eitthvað varnarklúður náðu þó BK menn að jafna aftur ca 15 mín fyrir leikslok, frekar grátlegt þar sem þeir sköpuðu sér lítið sem ekkert í seinni hálfleik. Heklan setti síðan allt í sóknina, Einar skoraði skallamark sem var dæmt af vegna rangstöðu og fékk svo fleiri skallasénsa sem ekki nýttust. Hjalti fékk einnig flotta stungusendingu og var kominn einn í gegn þegar dómarinn ákvað að það hefði líka verið rangstaða þrátt fyrir að vera engan veginn viss – dæmdi bara uppá vanann. Samtal við dómarann eftir þennan dóm: “Það er auðvitað mjög súrt að þú skulir dæma rangstöðu á okkur í hvert skipti sem við erum komnir í gegn – ef við komumst í gegn þá einfaldlega dæmiru rangstöðu, þetta getur bara ekki staðist” Dómarinn: “Já ég veit. Það er bara erfitt að eiga við þessa rangstöðu! Ég reyni að gera mitt besta.” Athyglisvert þarna hjá dómaranum en hann má þó eiga það að hann er einn skásti dómari sem Heklan hefur fengið bara ever held ég. Leikurinn fjaraði síðan út – 2-2 jafntefli staðreynd og gríðarlega mikilvægt stig í hús fyrir Hekluna í fallbaráttunni.
Eftir leik bað dómarinn síðan Hekluna um leyfi til að mæta á æfingu og skrifa grein um grjóthörðu Íslendingana í SF Heklu en hann er sem sagt blaðamaður og er alveg heillaður af þessu Íslendingasamfélagi sem Heklan hefur skapað með fótboltanum. Þannig að Heklan er á leið í blöðin takk fyrir.
Takk fyrir.
Einar
Byrjunarliðið:
Sindri mark
Óskar hægri bak
Heiðar vinstri bak
Einar-Gunni hafsentar
Andri-Hjalti miðja
Kristján Rafn vinstri kantur
Magnús Þórður hægri kantur
Davíð fyrir aftan senter
Elli Joð frammi
Varamenn sem allir komu inná:
Elvar
Svabbi
Hjalti nýji “Chessi”
Mörk:
Hjalti
Maggi Þórður
Spjöld:
Elli Joð
Maður leiksins:
Enginn valinn
Pistill:
Einar
